D’Alamel er hvítvín frá „franska“ vínhúsinu Casa Lapostolle í Chile, hreint Chardonnay-vín.Lapostolle-fjölskyldan franska er þekktust fyrir framleiðslu á Grand Marnier-líkjörnum en hún fjárfesti einnig í víngerð í Chile á síðasta áratug og átti þar samvinnu við víngerðarmanninn Michel Rolland.
Suðrænn ávöxtur, ferskjur, ananas, sítrus, vanillusykur. Þurrt, sítrusríkur ávöxtur í munni, mild sýra. Þægilegt vín.
1.999 krónur. Góð kaup.