Jacob’s Creek Riesling 2014

Riesling er þrúga sem yfirleitt er tengd við norðlægari slóðir, Þýskaland og norðausturhluta Frakklands. Lengi vel var talið að hún myndi ekki plumma sig annars staðar en með nýjum klónum og nýrri tækni hafa t.d. Ástralar náð alveg hreint ágætis tökum í heitu loftslagi á þessari þrúgu.

Jacob’s Creek Riesling er mjög ljóst á lit, fölgrænt. Létt, lipurt og ferskt, mikill sítrus, sítróna og limóna, örlítill vottur af blómum í angan.

1.899 krónur. Góð kaup.

Deila.