Fortius Tempranillo Roble 2011

Navarra er næsta svæði við hið þekkta víngerðarhérað Rioja og það á því ekki að koma á óvart að það er oft ansi áþekkt yfirbragð á vínunum, að minnsta kosti þegar að þrúgan Tempranillo kemur við sögu.

Fortius Tempranillo Roble er eikarlegið rauðvín frá Navarra, hálft ár á amerískri eik,, sem óneitanlega minnir um margt á einfaldan Crianza frá Rioja. Þroskuð rauð ber, kirsuber,  kryddað með nokkurri vanillu,  gott matarvín.

1.899 krónur. Góð kaup.

Deila.