Valtravieso er eitt af mörgum frábærum vínhúsum í Ribera del Duero á Spáni og hefur þá sérstöðu að vera það vínhús sem ræktar þrúgur sínar í hvað mestri hæð. Ekrur Valtravieso eru heila 900 metra yfir sjávarmáli. Við heimsóttum Valtravieo síðastliðið haust og má lesa nánar um vínhúsið með því að smella hér.
Vínið Roble er yngasta vínið frá Valtravieso og kemur á undan Crianza í flokkuninni. Látið það hins vegar ekki blekkja ykkur, þetta er alvöru vín með fína dýpt og þyngd. Kröftugur dökkrauður ávöxtur í nefi, kirsuber, bláber, sæt vanilla og ristaðar kaffibaunir. Kröftugt, mjúk tannín, kryddað, mýkist vel ef því er leyft að anda í smástund.
80%
2.599 krónur. Frábær kaup, fínt rauðvín með nauti og lambi.
-
8