Nokkur vín í kassa

Svokölluð kassavín, beljur eða bag-in-box eru fyrirferðarmikil í vínsölunni, ekki bara hér á landi heldur um Norðurlöndin öll. Þrátt fyrir að vínin í kössunum séu sjaldan á pari við vín í flöskum eru aðrir kostir sem að neytendur virðast kunna að meta. Þar má nefna að ekki þarf að opna heila flösku til að fá sér glas af víni með matnum, kassarnir eru meðfærilegir og brotna ekki, henta því vel í skottinu á leið upp í sumarbústað og síðast en ekki síst eru þetta alla jafna ódýr vín þegar horft er á lítraverðið eða borið saman við hvað hver 75 cl flaska af víninu í kassanum myndi kosta.

mixtusEn það er líka að ýmsu að gæta. Kassavínin eru meiri ferskvara en flöskuvínin. Vínin geymast ekki lengi í kassanum þó hann hafi ekki verið opnaður og því er skynsamlegt að skoða hvenær víninu var tappað á kassann. Munið líka að það er meiri brennisteinstvíoxíð í kassavínunum en flöskuvínunum til að halda þeim „stöðugum“ og því er nauðsynlegt að lofta þau aðeins, t.d. með því að hella yfir í karöflu og láta vínið standa smá stund áður en hellt er í glösin.

Hér eru nokkur kassavín sem nýlega hafa komið til smökkunar:

Drostdy-Hof Viognier-Chardonnay 2014 er suður-afrískt hvítvín sem hefur notið mikilla vinsælda hér og á Norðurlöndunum. Það er létt, svolítið hlutlaust og milt með ágætlega þægilegum sítrus og epla- og peruávexti. Mjúkt og þægilegt.

3 stjornur

 

 

5.999 krónur eða um 1499 krónur á flösku. Góð kaup.

Drostdy-Hof Shiraz-Pinotage 2014 er rauða systurvínið, það er heitt og ágætlega massað, dökk sólþroskuð ber, nokkuð kryddað. Mjúkt í munni með nokkrum reyk.

3 stjornur

 

 

5.999 krónur eða um 1499 krónur á flösku. Góð kaup.

Mixtus Shiraz-Malbec 2014 er argentínskt rauðvín frá vínhúsinu Trivento. Í Mixtus-línunni er ávallt blandað saman tveimur þrúgum og hér eru það frönsku þrúgurnar Shiraz og Malbec, Vínið nokkuð dökkt, kryddað með ágætlega ferskum berja- og plómuávexti, vottur af kaffi, mjúk tannín.

3,5 stjornur

 

 

5.199 krónur eða sem samsvarar 1.299 krónum á 75 cl. flösku. Mjög góð kaup á því verði.

Mixtus Cabernet Sauvignon-Merlot er annað vín úr sömu línu en hér eru það Bordeaux-þrúgurnar Cabernet og Merlot sem mynda blönduna. Dökkur litur, ungur, út í fjólublátt, angan af sólberjum og bláberjum, í munni er ávöxturinn sætur, þokkalega djúpur og með mildum kryddkeim. Prýðilegasta vín.

3 stjornur

 

 

5.199 krónur eða sem samsvarar 1.299 krónum á 75 cl. flösku. Mjög góð kaup á því verði.

Casa Nostra Apassimento er suður-ítalskt rauðvín, nánar tiltekið frá Púglíu á hæl ítalska stígvélsins sem sameinar tvær afar vinsælar kategóríur, annars vegar kassavínin og hins vegar appassimento-stílinn sem er þegar þrúgurnar eru þurrkaðar að hluta áður en víngerjunin hefst. Stundum er þetta til bóta í vínum, gerir þau kröftugri og meiri en stundum, þegar lagt er upp með fremur óspennandi þrúgur til að byrja með, er bara verið að magna upp leiðindin. Púglía-vínin eru alla jafna kröftug og sólrík að upplagi og þetta vín ber öll helstu einkenni þeirra, þroskaður, heitur ávöxtur, áberandi plómur, dökk þroskuð krækiber, töluvert kryddað. Þetta er kassavín sem hefur góðan karakter og þokka. Fínasta matarvín.

3,5 stjornur

 

 

5.999 krónur eða um 1499 krónur á flösku. Mjög góð kaup.

Pata Negra Apasionada 2014 er eins og nafnið gefur til kynna úr Pata Negra-línunni frá Garcia Carrion, einu stærsta vínfyrirtæki Spánar. Pata Negra vínin eru fyrir sig framleidd úr þrúgum frá átta af helstu víngerðarsvæðum Spánar og í þessu kassavíni eru það Monastrell-þrúgur frá Jumilla ásamt þrúgunum Petit Verdot og Cabernet Sauvignon. Það verður að segjast eins og er að þetta með betri kassavín sem hefur rekið á fjörur okkar, alvöru vín í alla staði og þrátt fyrir að nafnið minni á hið ítalska hugtak Apassimento eru þetta ekki þurrkaðar þrúgur.  Dökkt, þroskaður, heitur og kryddaður ávöxtur, mjög dökk ber og plómur, nokkuð súkkulaði og vanilla. Þétt og þykkt. Hefur kannski ekki dýpt og breidd dýrari vína en fyrir verðið er þetta magnað vín og fær einkunn í samræmi við það.

4 stjornur

 

 

5.999 krónur eða um 1.499 krónur á flösku. Frábær kaup.

 

Deila.