Faustino er eitt af stóru, klassísku vínhúsunum í Rioja á Spáni og vínin þeirra hafa í gegnum árin verið einhver fyrstu kynni margra Íslendinga af þessu þekktasta vínhéraði landsins.
Crianza-vínið 2011 er dæmigert Rioja-vín, að mörgu leyti skólabókardæmi um það sem einkennir klassískt Rioja-vín. Þroskaður, kryddaður rauður ávöxtur, þroskaðar plómur, töluverð eikaráhrif, kryddað, bökunarkrydd, mjög mjúkt og milt.
70%
2.190 krónur. Mjög góð kaup. Með flestu kjöti eða þess vegna saltfiski.
-
7