Cune eða Cvne eins og Compania Vinicola del Norte de Espana er yfirleitt kallað er helsta vínhús Rioja-héraðsins en hefur einnig sótt á önnur spænsk vínmið. Þetta rauðvín er t.d. vín frá hinu magnaða svæði Ribera del Duero, flokkað sem Roble eða Joven en það gefur til kynna að um mjög ungt vín er að ræða sem hefur þó engu að síður fengið smá snertingu við eik.
Vínið hefur dökkan þéttan lit, í nefi töluvert þroskaður, sólbakaður svartur ávöxtur, krækiber, plómur, all nokkuð míneralískt, kalk, kryddað, þykkt, þurrt, ágætis matarvín.
70%
2.499 krónur. Góð kaup.
-
7