Terrunyo Sauvignon Blanc 2013

img_3362Terrunyo-vínin frá Concha y Toro eru einnar ekru vín af mismunandi svæðum. Sauvignon Blanc-vínið kemur af Block 5 á Los Boldos ekrunni sem er í héraðinu Casablanca, einu besta hvítvínssvæði Chile.

Þetta er hreinlega magnaður Sauvignon Blanc fyrir peninginn, árgangurinn var svalur á suður-amerískan mælikvarða og því svolítið evrópskir tónar í stílnum. Kröftugur, sætur og þroskaður ávöxtur, haugur af sítrus, ekki síst greip og lime og melónu, grösugt, nokkuð míneralískt, ávöxturinn langur og djúpur, smá selta í lokin.

100%

3.199 krónur. Frábær kaup.

  • 10
Deila.