Cepa 21 er eitt af nýju vínhúsunum í hinu magnaða spænska héraði Ribera del Duero. Það er í eigu Moro-fjölskyldunnar og er framarlega í bylgju nútímalegra Ribera-vína og er auðvitað gert úr þrúgunni Tinto Fino, sem að víða annars staðar á Spáni er nefnd Tempranillo.
2010 árgangurinn er að ná fullkomnum þroska núna, þótt vel megi geyma hann lengur. Kröftugt vín þar sem eikin er áberandi eins og yfirleitt í betri spænskum vínum. Dökkur berjaávöxtur, sólber með mjúkum kaffi og kryddhjúp. Vínið er tannískt og öflugt, flottur strúktúr. ágengt og unaðslegt.
100%
3.599 krónur. Frábær kaup á því verði.
-
10