Toro er vínhérað á Spáni sem að við höfum séð allt of lítið af hér á landi en það er eitt af þeim spænsku víngerðarhéruðum sem hefur verið í hvað mestri sókn undanfarin ár. Vínin frá Toro hafa ávallt haft það orð á sér að vera öflug. Þrúgan sem þarna er ræktuð er kölluð Tinta de Toro, afbrigði af Tempranillo, hýðið er þykkara en í afbrigðinu í Rioja sem gerir vínin tannískari og litmeiri. Finca Sobreno er einn besti framleiðandi Toro og við heimsóttum vínhúsið á ferð um Toro sem má lesa um með því að smella hér.
Finca Sobreno Tempranillo er gert úr lífrænt ræktuðum þrúgum, dökkt og kröftugt eins og Toro-vína er von og vísa, í nefinu svartur berjaávöxtur, út í krækiber sem blandast saman lakkrís, vínið dimmt og kryddað, tannín kröftug og mikil.
2.390 krónur. Frábær kaup.
-
9