Chateau Tour Baladoz Saint-Emilion Grand Cru 2009

Chateau Tour Baladoz er frábærlega staðsett vínhús, á besta stað efst á Saint-Emilion hæðinni, á sömu slóðum og þekkt hús á borð við Troplong-Mondot og Tertre-Roteboeuf. Þetta er ekki stór eign en vínin eru algjörlega mögnuð og á frábæru verði miðað við mörg betri Bordeaux-vín.

Vínið er enn dökkt og ungt að yfirbragði, kröftugur svartur ávöxtur, mjög þykkur og nokkuð heitur, sólber og sætar, allt að því sultaðar plómur, þétt eik heldur utan um ávöxtinn, mikið og öflugt vín, meira en maður á von á, tannín mjög kröftug en farin að mýkjast nokkuð. Umhellið.

100%

5.499 krónur. Frábær kaup og fær fullt hús fyrir einstakt hlutfall verðs og gæða.

  • 10
Deila.