Veitingahúsið Dill og kampavínshúsið Moet & Chandon taka höndum saman með að skapa einstaka kvöldstund þar sem matreiðslumeistarar Dill para sjö rétti við sjö tegundir af kampavíni frá Dom Perignon.
Matreiðslumennir á DILL Restaurant Reykjavik þekkja vel mikilvægi næringar og hafa tekið saman höndum til þess að bjóða okkur upp á „matartíma“.
Matartími verður haldinn í sjötta skiptið í Reykjavík. Dom Perignon er eitt þekktasta kampavín veraldar og verða nokkur af fágætari kampavínum hússins í boði og aðeins þetta eina kvöld.
Eingöngu 30 sæti eru í boði og er verðið 50 þúsund krónur á einstakling.
Kl 18:30 hittist hópurinn í fordrykk í hliðarsal KEX Hostel en salurinn heitir Gym&Tonic. Kl 19:00 er ekið frá KEX Hostel á staðinn þar sem viðburðurinn fer fram.
Matseðillinn er eftirfarandi:
- Kræklingur, gúrka og vatnakarsi.
- Grafin Keila, svartur hvítlaukur og grænkál.
- Gerjuð rófa, saltfiskur, rúgbrauð.
- Maltað bygg og þurrkaður fiskur.
- Grísasíða, nípa og rósavinagretta.
- Tindur og hunang anno ’15.
- Mysingur, Rauðbeða og Tarragon.
Hægt er að bóka á þennan viðburð með því að smella hér.