Víngerð Rivetto-fjölskyldunnar ætti að vera áhangendum Piedmont-vína hér á landi að góðu kunn. Þetta rauðvín nefnist Langhe Nebbiolo sem vísar til þess að það er gert úr Nebbiolo-þrúgum sem eru ræktaðar í Langhe en þó utan hins þekkta undirsvæðis Barolo. Þetta er ungt og frísklegt Nebbiolo, bjartur, rauður ávöxtur, kirsuber ríkjandi, krydd og lyng. Áferðin er fersk, vínið sýrumikið og ungt.
80%
2.999 krónur. Frábær kaup. Fínasta matarvín. Með risotto og sveppum.
-
8