George Wyndham Shiraz Bin 555 2018

Shiraz eða Syrah ef við viljum nota franska heitið er sú rauða þrúga sem flestir tengja líklega við Ástralíu, enda unir hún sér mjög vel í hitanum þar suðurfrá. Sá  sem líklega var fyrstur til að rækta þessa þrúgu í Ástralíu var Breti að nafni George Wyndham sem hóf vínrækt í Hunter Valley á fyrri hluta nítjándu aldar. Vínhúsið sem ber nafn hans er í dag í eigu Pernod-Ricard og Shiraz-vínið Bin 555 er traust og fínt Shiraz-vín. Liturinn er dökkur og djúpur og ávöxturinn í nefinu er svarfjólublár, þarna eru plómur og krækiber, nokkur vanilla og reykur, yfirbragðið er þurrt, vínið hefur ágæta þykkt og ferskleika.

2.699 krónur. Mjög góð kaup.

  • 7
Deila.