Barolo-vínin eru með bestu matarvínum Ítalíu og henta vel með kröftugum, jarðbundnum mat, s.s. risotto með sveppum.
Yfirleitt eru þessi vín hins vegar dýr en Cantine Veglio er á ótrúlega góðu verði miðað við Barolo-vín almennt. Í nefi þroskuð ber, sólber, kryddjurtir, stíf sýra, nokkuð tannískt, ágætis fylling. Gefið því smá tíma til að opna sig. Nýtur sín vel með mat.
3.298 krónur. Mjög góð kaup.