Valdibella ólífuolía

Við erum alltaf á höttunum eftir góðri ólífuolíu enda geta gæði olíunnar ráðið úrslitum um hvernig maturinn bragðast í mörgum tilvikum. Ef olian er góð þarf varla annað á salati og svo er líka svo gott að hella nokkrum dropum af olíu yfir flesta rétti, hvort sem um er að ræða pasta eða steik. Við höfum fjallað um vínin frá lífrænu bændunum í Valdibella á Sikiley en ólífuolían þerra er ekki síður afbragð. Bragðmikil, ávaxtarík og krydduð. Með bestu olíu sem fást hér á landi. Fæst í Frú Laugu.

Deila.