Adobe vínin frá Chile eru öll lífrænt ræktuð en þau koma frá vínhúsinu Emiliana sem er orðið einn helsti framleiðandi lífrænt ræktaðra vína í heiminum.
Merlot Reserva 2009 er framleitt úr þrúgum úr Rapel-dalnum. Ávöxturinn dökkur, skarpur, ung kirsuber. Vínið er enn ungt. Örlítið grænt með papriku í munni, eik agressív.
2.149 krónur.