Þetta er lífrænt ræktað rauðvín frá Miðjarðarhafssvæði Frakklands, nánar tiltekið héraðinu Cotes de Rousillon, og blanda af dæmigerðum Miðjarðarhafsþrúgum: Syrah, Grenache, Carignan og Mourvédre.
Angan vínsins er þurr og krydduð með þurrkuðum ávöxtum, sveskjum og rúsínum. Bragðið langt og kryddað, áferð mjúk og þroskuð.
Með pottréttum í anda Miðjarðarhafsins og lambakjöti krydduðu með hvítlauk og rósmarín.
2.190 krónur