Þetta er flott vodka-útgáfa af Mojito með Absolut Ruby Red en í þeirri útgáfu úr Absolut-línunni er það blóðgreip sem gefur bragðið.
4 cl Absolut Ruby Red
3 limebátar
Myntulauf ,ca 10 lauf
Hrásykur 1 teskeið
Blóðappelsínusafi (eða venjulegur appelsínusafi)
Merjið hrásykurinn, limebátana og myntulaufin saman í glasi með staut. Hellið vodka yfir. Fyllið glasið af hálfu með muldum klaka og fyllið með blóðappelsínusafa.
Skreytt með Appelsínu sneið