Norton Privada 2007

Þetta argentínska vín úr þrúgunum Malbec, Merlot og Cabernet sýnir vel hversu mikil og öflug hún getur verið en Malbec, þótt hún sé frönsk að uppruna, er orðin að helsta tákni argentínskra rauðvína og fær hér að njóta sín með ættingjum sínum frá Bordeaux.

Norton Privada er massað þungaviktarvín, þetta er ekki vín fyrir þá sem eru að leita að fínleika og elegans, hér er það aflið sem ræður ferðinni. Liturinn er djúpur og dökkur og angan kröftug, þroskaðar plómur, sólber, og úr eikinni kókos, vanilla og dökkristað kaffi. Í munni ágengt og áfengt en þykkt og rjómamjúkt með nokkuð krydduðum enda, út í lakkrís.

Þetta er vín sem myndi bera fínlegan mat ofurliði, hentar best með grilluðu, fitusprengdu kjöti, t.d. safaríkri Ribeye, og einföldu meðlæti.

2.950 krónur bara ansi vel sloppið fyrir vín þessum þyngdarflokki og nælir sér í hálfa stjörnu í viðbót fyrir það.

 

Deila.