Columbia Crest Grand Estates Merlot 2008

Columbia Crest er helsti vínframleiðandi Washington-ríkis í norðvesturhorni Bandaríkjanna. Vínhéruðin eru á svipaðri breiddargráðu og Bordeaux í Frakklandi og rétt eins og þar unir Merlot-þrúgan sín vel.

Þetta vín er búið að ná góðum þroska, er á toppnum. Þýkkt með angan af kaffi, súkkulaði og sætum kirsuberjaávexti, nokkuð eikað, ristað með vanillukeim. Feitt og mjúkt í munni, pólerað eins og vel bónaður bíll. Með nauti eða lambi.

2.898 krónur.

Deila.