Yellow Tail-vínin eru með mest seldu vínum Ástralíu og hér er það Cabernet Sauvignon-vínið úr línunni.
Vínið er nokkuð dökkt á lit, ávöxturinn heitur, reykfylltur og svolítið kryddaður, þarna er mynta, dökkir ávextir, plómur og sólber. Ágætlega þykkt og safaríkt í munni, áreynslulaust vín. Reynið með grilluðu kjöti með BBQ-sósu.
1.999 krónur.