Ribera del Duero er eitt það virtasta á Spáni og vínin þaðan yfirleitt tignarleg, eikuð og dýr. Hér er hins vegar mjög ungt og ódýrt Ribera-vín frá Mayor de Castilla sem er töluvert frábrugðið hinum dýrari vínum í stílnum.
Mayor de Castilla Cosecha 2009 mun vera mest selda vín Ribera-héraðsins, ungt og óeikað enda flokkað sem Cosecha, sem er flokkurinn fyrir neðan Crianza. Það er fremur létt með dökkum berjum, krækiberjaávexti og smánegul í nefi, tannískt en ekki agressívt. Lifnar ágætlega við með mat.
1.599 krónur. Góð kaup.