Sasso al Poggo 2005

Þetta Toskana-vín er frá vínhúsinu Piccini og er flokkað sem IGT enda byggist það ekki eingöngu á hinni hefðbundnu Sangiovese-þrúgu heldur einnig frönsku Bordeaux-þrúgunum Cabernet Sauvignon og Merlot.

Í nefi sviðin eik og þungur, dökkur ávöxtur, þurrkaðar plómur, reykur og örlítill apótekaralakkrís. Í munni mjúkt með heitu, mössuðu og þroskuðu yfirbragði og lifandi sýru.

2.999 krónur.

 

Deila.