Alpha-línan frá Montes er Íslendingum að góðu kunn enda hafa þessi vín sannað sig sem einhver þau jafnbestu miðað við verð sem Chile býður upp á. Montes var meðal frumkvöðlanna er hófu ræktu í Colchagua-dalnum en það er nú talið eitt besta Cabernet-svæði Chile ásamt hinu gamalgróna og klassíska Maipo.
Montes Alpha Cabernet Sauvignon 2008 einkennist í nefi af djúpum og þroskuðum sólberjamassa umvafin eik með votti af ekvalyptus og vindlakassa. Kröftugt og kryddað í munni, tannínin hafa engu að síður mjúkt yfirbragð. Það borgar sig að umhella víninu.
Reynið með nauti eða lambahrygg.
2.698 krónur. Frábær kaup á því verði sem tryggir hálfa viðbótarstjörnu.