Vínin frá Beaujolais voru lengi með mestu seldu vínum hér á landi en það er löngu liðin tíð. Það er hins vegar fyllsta ástæða til að endurnýja kynnin og láta ekki slæmar minningar af Beaujolais Nouveau spilla fyrir. Bestu vín héraðsins eru kennd við einstök þorp og eitt það helsta heitir Morgon.
Michel Guignier er lítill framleiðandi sem framleiðir lífræn vín á örfáum hektörum í Morgon. Vínið Morgon Bio-Vitis er hreint Gamay-vín líkt og önnur vín héraðsins en öflugra en flest þeirra, kröftugur berjaávöxtur, skógarber og kirsuber og örlítil rabarbarasulta. Yfirbragðið svolítið kryddað, fyllingin góð, allt að því Búrgundarleg og bragðið djúpt. Enn og aftur…hvers vegna ekki að endurnýja kynnin við Beaujolais.
3.490 krónur. Reynið t.d. með kalkún.