Þetta er kaka sem tilvalið er að gera á þessum árstíma þegar hægt er að fá ítalskar Panettone-kökur í flestum stórmörkuðum. Afganginn af kökunni er svo tilvalið að skera niður og frysta.
- 1/3 af Panettone-köku
- 200 g möndlur
- 250 g smjör
- 250 g Mascarpone
- 6 egg
- 400 g dökkt súkkulaði (70%)
- 200 g sykur
- 1 vanillustöng
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180 gráður.
- Myljið möndlurnar og Panettone í matvinnsluvél. Geymið.
- Smyrjið 22-25 sm smelluform og stráið smá af Panettone-blöndunni í formið.
- Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði.
- Skerið vanillustöngina í tvennt og skrapið fræin úr.
- Blandið saman smjörinu og sykrinum í matvinnsluvél. Bætið eggjunum, vanillufræunum, súkkulaðinu, Mascarpone og Panettone-blöndunni saman við.
- Setjið í formið og bakið í 40-45 mínútur. Ofnar eru mismunandi og því getur bökunartíminn verið örlítið mismunandi.
Takið kökuna út úr ofninum og leyfið að jafna sig í um 15-20 mínútur áður en hún er borin fram.
Best er hún heit og á helst að vera mjúk í miðjunni. Með þessu heimatilbúinn vanilluís eða rjómi.