Montrouge Sauvignon Blanc 2009

Þetta er suður-franskt hvítvín frá Languedoc úr þrúgunni Sauvignon Blanc en aðstæður þar gera að verkum að vínin eru oft í stílnum eins konar blanda af hinum klassísku frönsku vínum og vínstíl Nýja heimsins.

Montrouge Sauvignon Blanc er bjart og sítrusmikið, í angan límónur og ferskjur, í munni létt og þægilegt með mildri og ferskri sýru. Fínt sem fordrykkur eða með fiskréttum t.d. bleikju með fetaosti og engifer.

1.599 krónur. Góð kaup.

 

Deila.