Sænski meistarakokkurinn Matthias Dahlgrein og veitingahús hans hlutu verðlaunin The Nordic Prize en þau voru afhent í annað skipti á sunnudagskvöld.
Dahlgren er 41 árs að aldri og hefur verið meðal fremstu matreiðslumeistara á Norðurlöndum um langt skeið. Hann sigraði í keppninni Bocuse d’Or árið 1997 en þá hafði hann um nokkurt skeið rekið veitingahúsið Fredsgatan 12 í Stokkhólmi ásamt Melker Anderson. Sama ár og hann hampaði Bocuse gullinu opnaði hann veitingahúsið Bon Lloc, sem var um árabil eitt besta veitingahús Norðurlanda og 2007 flutti hann sig yfir á Grand Hotel þar sem hann hefur síðar rekið veitingahúsið Matthias Dahlgren. Veitingahúsið er með tvær Michelinstjörnur.
Eitt veitingahús frá hverju Norðurlandanna var tilnefnt til Nordic Prize 2011. Chez Dominique í Helsinki, Oscarsgate í Osló, Henne Kirkeby Kro í Danmörku og Dill í Reykjavík.
Verðlaunaafhendingin fór fram á Falsled Kro á Suður-Fjóni, sem er með bestu sveitaveitingahúsum Danmerkur. Kokkurinn Per Hallundbæk fór á kostum og það var ekki fyrr en að loknum tíunda rétti sem gestir fengu að vita hver úrslitin í keppninni voru. Það var frægasti matreiðslumeistari Noregs fyrr og síðar, Eyvind Hellström, stofnandi Bagatelle í Ósló, sem afhenti verðlaunin en dómnefndir frá öllum Norðurlöndunum höfðu fyrst tilnefnt eitt veitingahús frá hverju landi og síðan kosið á milli fyrrnefndra fimm veitingahúsa.
The Nordic Prize var afhent í fyrsta skipti í fyrra en þá var það danska veitingahús Noma sem vann verðlaunin sem besta veitingahús Norðurlanda. Helsti hvatamaðurinn á bak við verðlaunin er Bent Christensen hjá Den Danske Spiseguide.