Trivento er eitt af vínhúsunum í eigu Concha y Toro-fjölskyldunnar frá Chile en það var stofnað árið 1997 í þeim tilgangi að nýta hina stórkostlegu aðstæður til víngerðar sem er að finna í Argentínu „hinum megin“ við Andesfjöllin. Vínin frá Trivento hafa reynst einstaklega traust og hlutfall verðs og gæða með því besta sem maður rekst á.
Malbec-þrúgan er síðan auðvitað sú þrúga sem mesta athygli hefur vakið frá Argentínu þótt hún komi upprunalega frá suðvesturhluta Frakklands. Í dag eru argentínsku Malbec-vínin hins begar bæði mun þekktari og vinsælli en hin frönsku.
Þetta er ungt vín, dökkfjólublátt á lit, heitur, þykkur og sætur ávöxtur í nefi, þroskaðar plómur, sólber, krækiber, eikin enn framarlega og áberandi, kaffi, ristað, tannín kröftug en ágætlega mjúk, hörkuvín en það mun sýna mun meira eftir 1-2 ár. Um að gera að umhella því tímanlega ef þið hafið ekki þolinmæði að geyma flöskuna þann tíma.
1.999 krónur. Frábært verð og frábær kaup.
-
8