Jean-Claude Boisset hefur byggt upp mikið vínveldi í Búrgund á síðustu áratugum með kaupum á hinum ýmsu vínhúsum. Hann var einungis 18 ára þegar að hann stofnaði sitt eigið négociant-fyrirtæki árið 1961 og árið 1985 varð hann fyrsti nécoiantinn sem að skráði sig í frönsku kauphöllina. Vínin sem hann setur á markað undir eigin nafni hafa vaxið mikið á síðust árum, ekki síst eftir að víngerðarmaðurinn Gregory Patriat tók við línunni árið 2002.
Ursulines er Pinot Noir frá blönduðum svæðum í Cote de Nuits í Búrgund. Ljósrautt, skógarber, rauðber í nefi, haustlauf, blóm, kryddað, létt með þægilegri og ferskri sýru.
70%
2.899 krónur. Mjög góð kaup.
-
7