Lamothe Vincent Heritage 2009

Lamothe Vincent Heritage er rauðvín frá Bordeaux í Suðvestur-Frakklandi og líkt og önnur rauðvín af því svæði er þetta blanda úr þrúgunum Cabernet Sauvignon og Merlot.

Vínin frá Lamothe Vincent hafa lengi verið í uppáhaldi hjá okkur fyrir gott samspil gæða og verðs. Það er ekki auðvelt að finna virkilega góð kaup í Bordeaux en þetta er dæmi um það og nú þegar 2009 árgangurinn bætist í jöfnuna, magnaður árgangur, tekur Lamothe smá kipp.

Þétt og massað, þetta er 14,5% vín sem segir sitt um árganginn fyrir venjulegan AOC Bordeaux. Angan af áfengum krækiberjasafa og sólberjum, léttkryddað með mildri eik og smá eik. Kraftmikið og flott, öflug tannín og massívur sýrustrúktur. Virkilega flott. Mun batna í 1-2 ár.

2.599 krónur. Mjög góð kaup. Lamothe-Vincent hefur aldrei verið betri en 2009 og fær nú fjórar stjörnur.

Deila.