Grikkir nota ólívur í marga rétt. Þessi heitir á grísku Kreas me Elies eða kálfur með ólívum.
Fyrir sex þarf eftirfarandi:
- 1 kg beinlaust kálfakjöt, skorið í stóra teninga
- 1 laukur, saxaður
- 1,5 dl hvítvín
- 1 dós maukaðir tómatar
- 1/2 búnt af steinselju, saxað
- 1 dós steinlausar svartar ólífur eða samsvarandi magn af grænum og svörtum til helminga
- hveiti
- ólívuolía
- Salt og pipar
Kryddið kjötið með salti og pipar og veltið því upp úr hveiti. Hitið olíuna á pönnu og brúnið kjötbitana. Bætið þá við tómötum, hvítvíni, lauk og steinselju. Blandið öllu vel saman, setjið þá lok á pönnuna og látið malla í um 45 mínútur á vægum hita. Takið lokið af pönnunni, bætið olífunum út á og leyfið að malla áfram í um fimm mínútur.
Berið fram með hrísgrjónum.
Það fer lítið fyrir grískum vínum. Hið portúgalska Crasto passar hins vegar mjög vel með þessum rétti.