Basturma er heitið á frummálinu yfir þessa georgísku uppskrift sem er dæmigerð fyrir matergerð Kákasushéraðanna.
Hráefni
- 1 kíló nautakjöt, t.d. sirloin eða innralæri
- 1 stór laukur, rifinn niður á rifjárni
- 3 hvítlauksgeirar, pressaðir
- lúka af söxuðum kóríander
- matskeið af söxuðu basil
- 2 dl ólívuolía
- 1 dl nýpressaður sítrónusafi
- kirsuberjatómatar
- vorlaukur
Aðferð
- Skerið kjötið í bita.
- Blandið saman lauk, hvítlauk og kryddjurtunum. Saltið og piprið.
- Blandið ólívuolíu og sítrónusafanum og saman og blandið síðan saman við laukblönduna.
- Hellið yfir kjötið og látið kjötið marinerast í ísskáp. Helst í sólarhring.
- Setjið kjötbitana á grillteina og grillið á grilli eða í ofni. Ekki ofelda, þetta er best medium rare.
- Setjið á fat og hrúgið niðursneiddum vorlauk og kirsuberjatómötum yfir.
Berið fram með kóríandersósu.