Hardys Mill Cellars Chardonnay

Vínin með fuglamyndunum frá Hardy’s voru einhver fyrstu áströlsku vínin sem hér sáust fyrir einum tveimur áratugum síðan. Hardys-vínin hurfu síðan af markaðnum um skeið en eru nú komin aftur.

Mill Cellars Chardonnay 2009 er ferskt, þægilegt hvítvín með sætum hitabeltisávexti, ananas, greip og ferskjur eru ríkjandi. Mjög mild eik blandast saman við ávöxtinn og útkoman er þægilegt og lítt krefjandi vín.

Sem fordrykkur eða t.d. með austurlenskum mat.

1.599 krónur. Góð kaup.

 

Deila.