Úlfur frá Borg Brugghúsi

Úlfur er nýr bjór frá Borg Brugghúsi og hann er jafnframt fyrsti India pale ale bjórinn sem framleiddur er hér á landi. India pale ale bjór var fyrst bruggaður á 18. öld í þeim tilgangi að þola siglingu yfir hálfan heiminn, eða frá Bretlandseyjum til Indlands.

 „Bragðið er einstakt og fyrir lengra komna, enda mikið notað af humlum“ segir Sturlaugur Jón Björnsson, bruggmeistari Ölgerðarinnar. „Hlutverk Borgar er fyrst og fremst að kynna nýjar tegundir bjóra fyrir landsmönnum og við erum sérlega ánægðir með Úlf, enda á India pale ale bjórtegundin sér einstaka sögu“. Áður hefur Borg Brugghús kynnt tvo bjóra; Bríó, sem var sérbruggaður fyrir gesti Ölstofunnar og nýtur mikilla vinsælda þar og Austur brúnöl, sem borinn er fram á veitingastaðnum Austur og þykir lostæti með góðri steik. Úlfur er nú fáanlegur í verslunum ÁTVR og það styttist í fjórða bjórinn frá Borg, sem ber heitið Bjartur.

Deila.