Ramón Roqueta er framleiðandi í Katalóníu á Spáni sem hefur höfuðstöðvar á hinu litla víngerðarsvæði Bages nyrst í héraðinu rétt undir frönskur landamærin. Vínið hefur verið fáanlegt hér um nokkurt skeið en er nú komið í nýjar umbúðir.
Þetta Reserva-vín úr þrúgunum Tempranillo og Cabernet Sauvignon er klassískt og nútímalegt í senn með mikilli en samt léttri eik er verður aldrei yfirþyrmandi, dökkum plómuávexti og súkkulaði. Gott nautakjötsvín.
1.749 krónur. Mjög góð kaup og verðið tryggir fjórðu stjörnuna.