Shiraz er sú þrúga sem flestir tengja við Ástralíu og hér er ódýrt og gott Shiraz-vín frá Grant Burge, sem er fjölskylduframleiðandi í Suður-Ástralíu.
Grant Burge Shiraz 2009 er dökkfjólublátt á lit, feitt og mjúkt með þykkum, sætum ávexti. Bláber og plómur í bland við kaffi, kókos og vanillu, allt á mýktina í munni,, vottur af eik. Grillað kjöt, jafnvel með BBQ-sósu.
1.999 krónur. Gott verð fyrir þetta vín sem tryggir því fjórðu stjörnuna.