Fleur de Cap Chardonnay 2009

Einhver merkilegasta stofnun suður-afríska víniðnaðarins er Bergkelder. Vínhús og vínkjallari sem byggður var við rætur fjallsins Papegaaiberg skammt frá Stellenbosch. Kjallarar Bergkelder teygja sig inn í fjaliið og eru vinsæll áningarstaður ferðamanna.

Bergkelder var opnaður árið 1967 og gegndi mikilvægu hlutverki í nútímavæðingu suður-afrískrar vínframleiðslu á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Mörg af þekktustu vínhúsum Suður-Afríku tengdust þá Bergkelder en nú eru vínin frá Fleur du Cap helsta flaggskip þeirra.

Fleur du Cap Bergkelder Selection Chardonnay 2009 er virkilega ljúft Nýjaheimsvín. Sætur og aðlaðandi sítrus, lime og greip, þroskaðar melónur og ferskjur. Mild vanilla úr eikinni. Ferskt og mjúkt í munni, sætur ávöxtur. Sumarvín.

1.899 krónur. Mjóg góð kaup á þessu verði.

 

Deila.