Fyrsti veitingahúsavísirinn, sem gefinn hefur verið út um veitingahús á Norðurlöndunum, kom út í síðustu viku í Danmörku en í honum er að finna lista yfir 66 bestu veitingahús Norðurlanda auk þeirra sem næst komust því að lenda á listanum.
Það þarf svo sem engum að koma á óvart að Noma við Norðurbryggju í Kaupmannahöfn tróni efst á listanum enda rómaðasta veitingahús Norðurlandanna. Næst á listanum er Matsalen Matthias Dahlgren sem fyrir skömmu hlaut The Nordic Prize, sem besta veitingahús Norðurlandanna á síðasta ári. Í þriðja sæti er Frantzen / Lindeberg í Gamla Stan í Stokkhólmi. Í næstu sætum á eftir koma svo Daxen Krog í Svíþjóð, Herman í Danmörku, Sölleröd Kro í Danmörku, Geranium í Danmörku, Henne Kirkeby Kro í Danmörku, Frederikshöj í Danmörku og Chez Dominique í Finnlandi.
Fjögur íslensk veitingahús eru á listanum yfir bestu veitingahús. Dill í Norræna húsinu er í 30. sæti, Listasafni á Hótel Holti í 51. sæti, Humarhúsið í 52. sæti og Vox í því 66.
Útgefandi 66 best restaurants er Daninn Bent Christensen, sem um árabil hefur gefið út helsta veitingavísi Dana, Den Danske Spiseguide og ritað fjölmargar bækur um veitingahús og mat. Hópur sérfræðinga í hverju landi stendur á bak við valið á veitingahúsunum og auk þess er þar að finna listun veitingahúsanna hjá Michelin, The White Guide í Svíþjóð, Den Danske Spiseguide og víðar.
Bent var á Íslandi um helgina og hélt blaðamannafund í Norræna húsinu þar sem bókin var kynnt. Hann sagði áhuga hjá íslenskum bókaverslunum á að selja bók sem þessa vera nánast engan en hún verður fáanleg í Norræna húsinu, á veitingahúsum auk þess hana er hægt að panta á Netinu hjá www.booksforcooks.dk. Þar er einnig hægt að nálgast app fyrir iPhone sem gerir iPhone-notendum kleift að skoða listann í gegnum símann.