Franck Millet Sancerre 2009

Franck Millet er lítið vínhús í Sancerre í Loire-dalnum í Frakklandi sem ræktar þar vín á 22 ekrum. Sancerre eru hin klassísku, upprunalegu Sauvignon Blanc-vín, sem margir aðrir vínræktendur um allan heim nota sem fyrirmynd þegar þeir rækta þessa þrúgu.

Sancerre 2009 frá Millet er klassískur, skarpur sancerre með greip og límónu í bland við steinefnakennda angan. Áherslan þó á ávöxt, ekki steinefni. Þurrt, bjart, svolítið skarpt í munni og með góða lengd. Reynið með t.d. geitaosti eða skelfiski.

2.999 krónur.

 

 

Deila.