Gravel Quarry frá Glen Carlou er Cabernet Sauvignon frá Paarl í Suður-Afríku, hrikalega þykkur og massaður. Glen Carlou var stofnað 1985 af víngerðarmanninum Walter Finlayson.
Þetta vín er fullorðins. Í nefinu sultaður bláberjamassi, blýantsydd, blek og sólber og dökkt súkkulaði, vottur af lakkrís. Þykkt og massað í munni með kröftugum, mjúkum tannínum, nokkuð eikað. Svona bolti þarf rautt kjöt, jafnvel villibráð og þykka sósu. Stendur líka fyrir sínu einn og sér, kannski með bita af góðum osti.
6.289 krónur