Fuzion er heiti vína sem framleidd eru af Zuccardi-fjölskyldunnu í Argentínu en eins og nafnið ber með sér er hún ítölsk að uppruna og hefur ræktað vín í Mendoza í um fimmtíu ár.
Þetta Reserva-vín er opið og þægilegt með björtum, rauðum ávexti í nefi, jarðarberjum, trönuberjum, rjóma og smá púðursykri. Í nefi má líka greina fjólur. Mjög mjúkt og þægilegt í munni, einfalt en aðlaðandi.
1.925 krónur. Góð kaup.