Vín frá Makedóníu rétt eins og öðrum ríkjum fyrrverandi Júgóslavíu hafa varla sést í íslenskum vínbúðum til þessa. Raunar á það við um vín Balkanskagans almennt, þar með talið grísk vín. Nú eru hins vegar komin nokkur vín frá makedóníska vínhúsinu Popova Kula í sölu.
Þrúgan Vranec er ein af meginþrúgum Balkanskagans og ein helsta rauðvínsþrúga Makedóníu, Serbíu og Svartfjallalands. Og það verður að segjast eins og er að hún á fyllilega erindi á markað út fyrir það svæði. Popova Kula Vranec er mjög dökkt, ilmurinn þungur og höfugur með áberandi eik, kaffi og plómusultu. Uppbygging öll þétt, ávöxturinn ber eikina vel og tannín eru mjúk en föst í sér. Stíllinn alþjóðlegur, vínið hefur gott af umhellingu.
2827 krónur. Góð kaup.