Villa Arvedi Amarone 2007

Amarone er magnaður vínstíll og þegar vel lætur eru Amarone-vínin í hópi höfugustu fulltrúa ítalskrar víngerðar.  Þau eiga sér hins vegar ekki langa sögu líkt og lesa má um með því að smella hér. Sérstaða Amarone felst í því að þrúgurnar eru þurrkaðar eftir tínslu og er því sem kemur úr þeim við pressun mun samþjappaðri en ella.

Angan af þroskuðum kirsuberjum og dökku súkkulaði, múskathneta. Þurrt, nokkuð sýrumikið og stamt, ágæt lengd. Reynið til dæmis með villibráð, gæs eða hreindýri.

3.590 krónur í 50 cl flösku.

 

Deila.