Darioush Signature Cabernet Sauvignon 2006

Darioush er vínhús í Napa í Kaliforníu með ekrur á svæðunum Oak Knoll og Mount Veeder. Það var stofnað af Darioush Khaledi, sem er af írönskum uppruna, árið 1997.

Darioush Signature Cabernet  er í raun ekki hreint Cabernet Sauvignon heldur klassísk Bordeaux-blanda að hætti „vinstri bakkans“ þar sem  smávegis af Merlot, Cabernet Franc og Malbec er bætt saman við til að gera vínið margslungnara.

Þetta er stórt og verulega massað vín, angan þess djúp með mjög þykkum og þroskuðum sólberjaávexti í bland við kaffi, mokka, anis,  blýantsydd, vanillu og kókos. Í munni kemur stærð vínsins vel í ljós, það hefur mjög mikla lengd og dýpt, þéttur og kjötmikill ávaxtamassi með fullkomlega samofinni ristaðri eik. Mjúkt og fínpússað, löng ending. Nautnafullt.

12.029 krónur.

 

Deila.