Kálfakjöt með furuhnetum

Það er ekki alltaf hægt að ganga að kálfakjöti vísu í kjötborðunum. En þegar það býðst er um að gera að stökkva á það. Hér eru kálfasneiðarnar eldaðar með furuhnetum og blandaðar saman við pasta.

  • 600 g kálfakjöt í þunnum sneiðum
  • 1,5 dl þurrristaðar furuhnetur
  • 2 dl hvítvín
  • 4 dl kjúklingasoð
  • 2 msk saxað ferskt rósmarín eða 2 tsk þurrkað
  • rifinn börkur af 1 sítrónu
  • 500 g pasta, t.d. casarecce eða tagliatellle
  • hveiti
  • smjör
  • olía
  • salt og pipar

Skerið kjötið litla bita og veltið upp úr hveiti.

Hitið smjör og olíu á pönnu. Brúnið kjötbitana í 5-8 mínútur. Takið af pönnunni og geymið.

Hellið hvítvíni á pönnunna ásamt sítrónuberki og rósmarín. Lækkið hitann. Leysið upp skófarnar sem hafa fests við pönnuna. Þegar vínið er búið að malla í um mínútu er kjúklingasoðinu bætt út á. Leyfið að malla á vægum hita í 10 mínútur og setjið þá kjötbitana aftur á pönnuna ásamt ristuðum furuhnetunum. Látið malla í 3-4 mínútur. Saltið og piprið.

Sjóðið pasta og blandið saman við kjötið á pönnunni ásamt um 1 dl af soðvatninu af pastanu. Blandið vel saman og berið fram með nýrifnum parmesanosti, baguette-brauði og salati.

Gott ítalskt rauðvín væri ekki slæmt með, t.d. Promessa Syrah-Merlot.

Deila.