Það er norður-afrískur fílíngur í þessari uppskrift enda á hún rætur sínar að rekja til Marokkó. Kjúklingurinn kryddaður með kröftugri kryddblöndu og síðan eldaður með sítrónum áður en ólívum og kóríander er bætt saman við.
- 1 kjúklingur bútaður í bita
- 1 sítróna, skorin í þunnar sneiðar
- 2 laukar, saxaðir
- ca 75 g grænar, steinlausar ólífur
- lúka af ferskum kóríander, fínsöxuðum
Kryddblanda
- 5 hvítlauksgeirar, pressaðir
- 1 tsk turmerik
- 1 tsk reykt paprikukrydd
- 2 tsk cummin
- maldonsalt
- 3-4 msk ólívuolía
Bútið kjúklinginn niður. Blandið pressuðum hvítlauk, turmerik, paprikukryddi, cummin, salti og olíu saman. Veltið kjúklingabitunum vel uppúr blöndunni.
Hitið olíu á pönnu og mýkið laukinn á miðlungshita í 4-5 mínútur. Bætið kjúklingabitunum út á pönnuna og brúnið í um fimm mínútur til viðbótar. Bætið sítrónusneiðunum út á pönnuna og blandið vel saman. Hellið þá um 5 dl af vatni út á pönnuna og látið malla í um 25 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður og sósan farin að þykkna. Veltið kjúklingabitunum reglulega á pönnuna. Bætið loks ólívunum út á og leyfið þeim að malla með í nokkrar mínútur.
Sáldrið loks söxuðum kóríander yfir og berið fram t.d. með tabbouleh couscous.