Þetta spænska rauðvín varð á skömmum tíma eitt mest selda spænska rauðvínið á Íslandi. Verðið skiptir þar örugglega miklu máli en ekki síst í ljósi þess hvað það kostar kemur vínið líka þægilega á óvart.
Crin Roja er úr smiðju vínhússin Bodegas Roqueta og eru þrúgurnar sem eru notaðar í vínið ræktaðar á spænsku hásléttunni í héraðinu Castillo La Mancha. Það er dökkt með ágætlega kröftugum, hreinum ávexti, þroskuðum plómum og krækiberjum. Þarna er líka smá krydd, gamaldags lakkrís og svartar ólívur. Í munni er vínið þægilega mjúkt. Þetta er engin flugeldasýning en fyrir verðið…
1.599 krónur. Fær hálfa stjörnu í viðbót fyrir hlutfalls verðs og gæða.