Það þarf ekki að útskýra fyrir mönnum hvað Mojito er. Það er hins vegar hægt að taka þessa hugmynd svo miklu, miklu lengra og búa til ótrúlega flotta drykki byggða á sömu grunnhugmynd. Hér er útfærsla Ása á Slippbarnum.
- 4,5 cl dökkt romm
- 2,5 cl sykursíróp
- 3 cl límónusafi
- 3 döss Angustora Bitter
- 6 myntublöð
Setjið í hristara með klaka og hristið vel saman. Síið tvöfalt (doupblestrain) og hellið í kokteilglas.
Fyllið upp með
- 3 cl kampavín/þurrt freyðivín
Skreytið með limesneið.